Ummmmm... þegar að
ég hugsa um þetta sumar þá hugsa ég um alla góðu tímana sem
að ég átti með vinum og vandamönnum... Það var gert margt í
sumar, þó var aðallega djammað af sér rassgatið!! Maður gerði
það sem að maður vildi í sumar og lét ekkert stoppa sig...
Það eru myndir hér á síðunni frá mörgum atburðum sem að
gerðust í sumar, en þó ekki frá öllum þar sem að myndavélin
mín eyðilagðist.. en svona er lífið... en hér ætla ég að koma
með smá myndablogg frá því helsta...
!!Fyrsta
Helgin Í Júní!!

Þarna var
djammað heima hjá Gísla Rúnari og svo kíktum ég og Annan mín í
bæinn... daginn eftir það var byrjað að sötra heima hjá mér og svo
líka kíkt í bæinn með Sigrúnu systir, Önnu, Lovísu og Rúnari
frænda... Þetta var góð helgi!! Takk fyrir mig þeir sem að tóku
þátt í þessari helgi með mér ;*
!!Sjonna
Partý!!

Sjonni
hélt nokkur góð partý þar sem að var margt um manninn... þar var
oft mikið drukkið, sungið og dansað... Hann varaði líka nágrannana
einu sinni við með mjög skemmtilegum miða sem að er hér á
myndinni... hehe.. heldur sniðugt, mér og Önnu fannst það allavegna
mjög fyndið... En takk fyrir mig Sjonni ;*
!!Viktors
Partý!!

Ohhhhh...
þetta var svo skemmtilegt kveld... það var svo mikið af fólki
þarna... FULLT af fólki sem að maður hafði jafnvel ekki djammað með
í laaaannnngaaannn tíma og líka fólk sem að maður hafði jafnvel
aldrei djammað með... mamma hans og fósturpabbi bættust meira segja
í hópinn og það var gítarstemmning og ekkert smá gaman... Takk
fyrir mig Viktor ;*
!!Benidorm!!

UNAÐUR!!
Ohhhh... "Ég viliggi fara heim" hehe... jáááá það var mikið sem að
gerðist á Bene... það var djammað, slegist, grátið, sungið, dansað,
rifist, farið í sólbað og verslað... Hvað gerðist ekki sko...
þetta var æðisleg ferð og ég get ekki beðið eftir því að fara út
næsta sumar!! Krakkar takk fyrir góða ferð ;*
!!Frændsystkinateiti!!

Jájájá..
Sigrún systir og Örvar kærastinn hennar fluttu út núna í sumar
þannig að ég er ein eftir í foreldrahúsum... En þau héldu líka
frændsystkinateiti núna í sumar sem að heppnaðist mjög vel... Það
mættu allir nema einn... Það var sungið og trallað og horft á gömul
myndbönd... Sumir héldu svo í bæinn, aðrir í partý og enn aðrir
fóru heim til barna sinna... Takk fyrir mig Sigrún og Örvar
;*
!!Þjóðhátíð!!

Ég held
að það séu ekki til orð sem að lýsa Þjóðhátíð!! Án efa það
skemmtilegasta sem að ég hef gert á ævi minni og ég ætla aldrei að
fara neitt annað!!!! Ég get sko ekki beðið eftir næstu,
ég tárast sko liggur við þegar að ég skoða myndirnar frá
Eyjum... Það sem að ég vil bara segja "LÍFIÐ ER
YNDISLEGT"
En ég vil
þakka öllum sem að tóku þátt í þessu yndislega sumri með mér... Ég
elska ykkur og ég vona að næsta sumar verði jafn gott hjá okkur
elskurnar ;* ;*